Við sérhæfum okkur í að ástands skoða fasteignir í öllum stærðum og gerðum.


Ástandsskoðun er mjög mikilvæg í nútíma þjóðfélagi vegna þeirra fjölmörgu þátta sem geta komið upp við t.d. sölu, kaup, leigu, byggingu, breytingar eða aðra þætti húsbygginga.


Við framkvæmum ítarlega skoðun á fasteignum og gerum lýsingu á ástandi þeirra í ítarlegri skoðunarskýrslu með tilliti til eðli byggingarhluta og einnig til laga, reglugerða og opinberra gagna.


Unnið er eftir viðurkenndum aðferðum sem eru kenndar við Háskólann í Reykjavík. Réttindi frá Háskólanum í Reykjavík.


Hafa samband


Netfang: fasteignaskodun@internet.is

Símar: 534 1700  /  Reynir 820 4410  /  Örn 848 0669


Sundagarðar 2, 104 Reykjavík


 

Fasteignaskoðun

Ástandsskoðun

Söluskoðun

Kostnaðaráætlanir

Verðmat

Kostnaðarmat

Dómsmat

Reynir Kristinsson er skoðunarmaður fasteigna og húsasmíðameistari með löggildingu á landsvísu útgefið af umhverfisráðherra. Reynir hefur starfað sem húsasmíðameistari, byggingarstjóri og við ástandsskoðun, verð- og sölumat á fasteignum fyrir banka, sparisjóði og fasteignasala, einnig við almenna ráðgjöf við kaup og sölu á fasteigna.


Örn Jóhannsson byggingatæknifræðingur, hefur starfað sem matsmaður bæði hérlendis og í Danmörku og einnig sem byggingarstjóri yfir bæði stæri og smærri verkefnum.
orn@fasteignaskodun.is  eða í síma 848-0669